Goðafoss er með fallegustu fossum landsins og kemur oft við sögu kristni á Íslandi.
Samkvæmt Kristnisögu á Þorgeir Ljósvetningagoði og lögsögumaður (sem bjó á Ljósavatni, þarna rétt hjá) að hafa kastað goðum sínum í fossinn eftir að kristni var lögtekin árið 1000 og fossinn fengið nafn sitt af því.
Reyndar er einnig til kenning djarfari fornfræðinga um að fossinn hafi strax í heiðni verið á einhvern hátt helgur staður og jafnvel að svæðið kringum Goðafoss og Þingdalur niður af því, séu hinir einu og sönnu Goðheimar. Í þeim efnum beita menn fyrir sig lýsingum á landsháttum úr Goðafræðum ásamt ýmsum örnefnum sem þeir tengja sömu fræðum svo sem (Ullarfoss,Gerðishóll o.sv.frv).